Alfreð ekki tilbúinn gegn Bayern

Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. AFP

Manuel Baum, þjálfari þýska knattspyrnufélagsins Augsburg, segir að nú styttist í að framherjinn Alfreð Finnbogason geti spilað sinn fyrsta leik
fyrir liðið á tímabilinu.

Augsburg mætir meisturum Bayern München í kvöld í 5. umferð þýsku 1. deildarinnar.

„Alfreð verður sjálfsagt ekki tilbúinn gegn Bayern. Hann er byrjaður að æfa með liðinu og við þurfum að sjá hvernig líkaminn bregst við
því,“ sagði Baum í gær.

Augsburg mætir Freiburg á laugardag og Dortmund aðra helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert