Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö fyrstu mörk sín fyrir Rostov er liðið vann sannfærandi 4:0-sigur á C-deildarliði Syzran á útivelli í 16 liða úrslitum rússnesku bikarkeppninnar í fótbolta dag. Viðar var eini Íslendingurinn sem kom við sögu hjá Rostov í leiknum.
Selfyssingurinn spilaði 80. mínútur og komu mörkin á 64. og 69. mínútu. Sverrir Ingi Ingason og Björn Bergmann Sigurðarson voru allan tímann á varamannabekk Rostov og Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópnum.
Mörkin hjá Viðari má sjá hér fyrir neðan.
Дубль в ворота «Сызрани» от Видара Кьяртанссона🔥 Смотрим! pic.twitter.com/MzeGY7zqA5
— Football Club Rostov (@rostovfc) September 26, 2018