Sísí gegn Söru eða Glódísi?

Sigríður Lára Garðarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Sigríður Lára Garðarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Golli

Lið þeirra Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, Glódísar Perlu Viggósdóttur og Sigríðar Láru Garðarsdóttur verða öll í skálinni þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á mánudaginn.

Sigríður Lára, eða Sísí, komst með Lilleström áfram í gær en liðið vann Zvezda í Rússlandi, 1:0, og einvígið samtals 4:0.

Rosengård, lið Glódísar, og Wolfsburg, lið Söru, eru í efri styrkleikaflokki fyrir dráttinn en Lilleström eitt liðanna átta í neðri flokknum. Lið úr sama styrkleikaflokki geta ekki dregist saman.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert