Stórsigur Wolfsburg í toppslagnum

Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði allan leikinn í stórsigri gegn Bayern …
Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði allan leikinn í stórsigri gegn Bayern München. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Wolfsburg þegar liðið vann 6:0-heimasigur gegn Bayern München í toppslag þýsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í dag. Ewa Pajor skoraði þrennu fyrir Wolfsburg en staðan að lokum fyrri hálfleik var 2:0, Wolfsburg í vil.

Ásamt Pajor þá skoruðu þær Pernille Harder og Alexandra Popp sitt markið hvor og þá varð Verena Schweers, leikmaður Bayern München, fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Wolgsburg er á toppi deildarinnar með 9 stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og markatöluna 14:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert