Ingibjörg tryggði sætið í 16-liða

Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði mikilvægt mark.
Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði mikilvægt mark. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ingibjörg Sigurðardóttir var hetja Djurgården í 2:1-sigri á Västerås í 32-liða úrslitum sænska bikarsins í fótbolta í dag. Hún skoraði sigurmarkið á 75. mínútu og tryggði A-deildarliðinu farseðilinn í 16-liða úrslitin. 

Västerås er í næstneðsta sæti í B-deildinni og kom Ingibjörg sínu liði til bjargar. Miðvörðurinn var í byrjunarliði Djurgården og spilaði fyrstu 85. mínúturnar. Guðbjörg Gunnarsdóttir lék ekki með liðinu í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert