Landsliðskonur í eldlínunni í Meistaradeildinni

Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. mbl.is/Þórir Tryggvason

Íslenskar landsliðskonur í knattspyrnu verða á ferðinni í Evrópu í dag þegar 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast. 

Sara Björk Gunnarsdóttir lék til úrslita í keppninni í sumar með liði sínu Wolfsburg. Þýska liðið mætir í kvöld spænska liðinu Atletico Madrid í Þýskalandi. 

Norska liðið Lilleström hefur aldrei komist lengra en í 16-liða úrslit keppninnar en telja Norðmenn nú möguleika vera fyrir hendi. Liðið dróst gegn Bröndby frá Danmörku og verður fyrri leikurinn í Noregi í kvöld. Sigríður Lára Garðarsdóttir leikur með Lilleström. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert