Zlatan fékk þrjár tilnefningar

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Svíinn Zlatan Ibrahimovic er tilnefndur til þrennra verðlauna í bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu, MLS-deildinni.

Zlatan, sem hefur unnið titla með félagsliðum í Hollandi, Spáni, Frakklandi og Englandi, hefur skorað 21 mark með LA Galaxy og hefur lagt upp sex mörk í þeim 25 leikjum sem hann hefur spilað á tímabilinu. Svíinn er tilnefndur í þremur flokkum, sem besti leikmaður deildarinnar, nýliði ársins og að eiga endurkomu ársins. Hann er eini leikmaðurinn sem er tilnefndur í þremur flokkum.

Wayne Rooney er tilnefndur sem leikmaður ársins en Rooney hefur gert það gott frá því hann kom til DC United frá Everton í júní. Hann hefur skorað 10 mörk í 18 leikjum og gefið fimm stoðsendingar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert