Messi fór meiddur af velli

Linonel Messi liggur í grasinu.
Linonel Messi liggur í grasinu. AFP

Lionel Messi þurfti að hætta leik eftir 26 mínútur þegar Barcelona og Sevilla áttust við í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Messi meiddist á hendi og óvíst er hvort hann geti spilað með Börsungum í Meistaradeildinni í næstu viku og gegn erkifjendunum í Real Madrid í deildinni um næstu helgi.

Eftir að hafa spilað fjóra leiki í deildinni í röð án sigurs fagnaði Barcelona 4:2 og tyllti sér í toppsæti deildarinnar.

Philippe Coutinho, Lionel Messi, Luis Suárez og Ivan Rakitic skoruðu mörk Katalóníuliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert