Rakel skoraði í sjötta leiknum í röð

Rakel Hönnudóttir skorar og skorar.
Rakel Hönnudóttir skorar og skorar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rakel Hönnudóttir og stöllur í Limhamn Bunkeflo eru komnar úr fallsæti í efstu deild Svíþjóðar eftir 3:0-útisigur á Kalmar í dag. Rakel skoraði þriðja mark Limhamn Bunkeflo snemma í síðari hálfleik. 

Rakel er búin að spila afar vel síðustu misseri og er hún búin að skora í sex leikjum í röð og gert átta mörk á þeim tíma. Með sigrinum fór Limhamn upp fyrir Vittsjö og upp í tíunda sæti, en neðstu tvö liðin í tólf liða deild falla. 

Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir Kristianstad sem fékk skell á heimavelli á móti Gautaborg, 5:1. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert