Wolfsburg með fullt hús stiga

Sara Björk Gunnarsdóttir var á sínum stað í byrjunarliði Wolfsburg …
Sara Björk Gunnarsdóttir var á sínum stað í byrjunarliði Wolfsburg í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg sem vann öruggan 3:0-heimasigur gegn Freiburg í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Noelle Maritz kom Wolfsburg yfir á 19. mínútu og Ewa Pajor tvöfaldaði forystu Wolfsburg á 39. mínútu og staðan því 2:0 í hálfleik.

Pajor bætti við þriðja marki Wolfsburg á 49. mínútu í upphafi síðari hálfleiks en Söru Björk var skipt af velli á 61. mínútu. Það kom ekki að sök og þægilegur 3:0-sigur Wolfsburg staðreynd en liðið er með fullt hús stiga í efsta sæti deildarinnar með 12 stig og hefur tveggja stiga forskot á Essen sem er í öðru sætinu með 10 stig en Wolfsburg á leik til góða á Essen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert