Fyllilega sanngjarn sigur

Massimiliano Allegri fagnar marki sinna manna á Old Trafford í …
Massimiliano Allegri fagnar marki sinna manna á Old Trafford í kvöld. AFP

Massimiliano Allegri, þjálfari ítölsku meistaranna í Juventus, var að vonum sáttur eftir sigur sinna manna gegn Manchester United á Old Trafford í kvöld þegar liðin áttust við í 3. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Argentínumaðurinn Paulo Dybala skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu og Juventus er komið langleiðina í 16-liða úrslitin en liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína og er með fimm stiga forskot á Manchester United sem er í öðru sæti. Liðin mætast í næstu umferð í Torinó 7. nóvember.

„Við spiluðum virkilega góðan leik hér í kvöld. Í seinni hálfleik pressaði United aðeins meira á okkur og neyddi okkur til að gera mistök með boltann svo við gáfum þeim nokkur hálffæri.

Sigurinn var hins vegar fyllilega sanngjarn. Við gerðum vel í að stjórna miðsvæðinu og jukum svo hraðann í sóknum okkur sem skilaði okkur marki og nokkrum færum,“ sagði hinn frábæri þjálfari Allegri eftir leikinn.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert