Svíinn Zlatan Ibrahimovic segir Patrick Vieira vera þann samherja sem hafi haft mest á hrif á sig en Ibrahimovic hefur spilað fyrir nokkur af stærstu félögum í knattspyrnunni: Ajax, Juventus, AC Mílanó, Inter Mílanó, Barcelona, PSG og Manchester United svo þau helstu séu nefnd.
Frakkinn var samherji Svíans hjá Juventus árið 2005. Ibrahimovic lýsir samskiptum þeirra á þann veg að Vieira hafi stöðugt látið Ibrahimovic vita að hann gæti gert betur. Hafi ýtt reglulega við honum ef honum þótti ástæða til. Ibrahimovic segir viðhorf Vieira hafa verið ólíkt viðhorfi annarra leikmanna sem hann hafði kynnst á þeim tímapunkti. Hann hafi kennt sér að menn spila ekki betur í leikjum en frammistaðan á æfingum bendir til.
Ibrahimovic segir enn fremur að Vieira hafi haft góð áhrif á fleiri leikmenn og ávallt verið tilbúinn til þess að miðla af sinni reynslu.
Ibrahimovic var valinn nýliði ársins í bandarísku MLS-deildinni í gær og má segja að þar hafi hann haft betur gegn Wayne Rooney sem nú er kominn til móts við enska landsliðið.