Real Madrid vann öruggan 2:0-sigur á Valencia á heimavelli sínum í spænsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Mörkin hefðu getað orðið mun fleiri hjá Real.
Staðan var orðin 1:0 eftir aðeins átta mínútur er Daniel Wass varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks, þrátt fyrir fín tækifæri.
Annað markið kom loks á 83. mínútu og var að verki Lucas Vázquez og sannfærandi frammistaða Real skilaði tveimur stigum í hús.
Real Madrid er í fimmta sæti deildarinnar með 23 stig, þremur stigum á eftir toppliði Sevilla og tveimur á eftir Barcelona, en þau eiga bæði leik til góða.