Landsliðsmennirnir Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson eru báðir í byrjunarliði CSKA Moskva sem mætir Evrópumeisturum Real Madrid í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á Santigo Bernabu-vellinum í Madrid en flautað verður til leiks klukkan 18.
CSKA Moskva hafði betur í fyrri leik liðanna á heimavelli 1:0. Arnór lék þá 12 síðustu mínúturnar en Hörður Björgvin lék ekki vegna meiðsla.
CSKA Moskva er í baráttu við tékkneska liðið Viktoria Plzen um að ná þriðja sætinu sem gefur sæti í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Liðin eru bæði með 4 stig en Viktoria Plzen mætir Roma á heimavelli.
#CSKA XI for the game against @realmadriden pic.twitter.com/52p97VZyqG
— PFC CSKA Moscow (@PFCCSKA_en) December 12, 2018