Benzema skaut Real upp í þriðja sæti

Karim Benzema skoraði sigurmarkið.
Karim Benzema skoraði sigurmarkið. AFP

Real Madrid er komið upp í þriðja sæti spænsku 1. deildarinnar í fótbolta eftir 1:0-heimasigur á Rayo Vallecano í 16. umferðinni í dag. Karim Benzema skoraði sigurmarkið á 13. mínútu. 

Real Madrid var heilt yfir mun sterkari aðilinn í leiknum, en Vallecano var nálægt því að jafna í uppbótartíma. Thibaut Courtois í marki Madrid varði hins vegar frá Alex Alegria og Emiliano Velazquez í blálokin og tryggði sínum mönnum þrjú stig. 

Madrídingar eru með 29 stig, tveimur stigum minna en topplið Barcelona sem á leik til góða gegn Levante á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert