Enn mistekst Alfreð og félögum að vinna

Illa hefur gengið hjá Alfreð Finnbogasyni og félögum.
Illa hefur gengið hjá Alfreð Finnbogasyni og félögum. AFP

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg í 1:1-jafntefli við Schalke í efstu deild Þýskalands í fótbolta í dag. Alfreð var tekinn af velli á 89. mínútu. 

Augsburg hefur gengið afar illa upp á síðkastið og er liðið búið að leika sex leiki í röð án sigurs. Fjórir leikjanna eru búnir að tapast og jafnteflin eru tvö. 

Alfreð og samherjar hans eru í 14. sæti deildarinnar með 14 stig eftir 15 leiki, rétt fyrir ofan fallsætin og takist liðinu ekki að snúa genginu við, tekur við hörð fallbarátta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert