Zlatan áfram í borg englanna

Zlatan Ibrahimovic verður áfram í herbúðum LA Galaxy.
Zlatan Ibrahimovic verður áfram í herbúðum LA Galaxy. AFP

Sænski markaskorarinn Zlatan Ibrahimovic mun spila áfram með LA Galaxy í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu eina leiktíð til viðbótar.

Zlatan kom til Los Angeles í mars eftir að hafa verið á mála hjá Manchester United. Þessi 37 ára gamli leikmaður skoraði 22 mörk í 27 leikjum fyrir LA Galaxy en liðið var einu stigi frá því að komast í úrslitakeppni MLS-deildarinnar.

Talið var að Zlatan gæti verið á förum aftur til Evrópu, jafnvel til síns gamla félags AC Milan á Ítalíu, en hann skrifaði undir nýjan samning við LA Galaxy og kvaðst á Instagram ekki hafa lokið verki sínu með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert