Stjóri Real hefur ekki áhyggjur af Mourinho

Santiago Solari hefur ekki áhyggjur af því að Jose Mourinho …
Santiago Solari hefur ekki áhyggjur af því að Jose Mourinho taki starfið sitt. AFP

Santiago Solari, knattspyrnustjóri Real Madrid, hefur ekki áhyggjur af því að Jose Mourinho muni leysa hann af hólmi. Mourinho var rekinn frá Manchester United í dag og er strax byrjað að orða hann við stjórastöðuna hjá Real Madrid. 

Mourinho stýrði Real Madrid með góðum árangri frá 2010 til 2013, en Solari skrifaði nýlega undir samning sem gildir til ársins 2021. 

„Af hverju ætti ég að hafa áhyggjur út af einhverjum vangaveltum?" spurði Solari á fréttamannafundi í dag. „Svona orðrómar eru í gangi á  hverjum degi í fótboltaheiminum og ég spái lítið í þeim," sagði Solari. 

Marcelo, leikmaður Real, fann til með Mourinho vegna brottrekstrarins. „Þetta er mjög leiðinlegt. Hann er glæsilegur stjóri. Það er ekki mitt að segja hvort hann eigi að koma til Real Madrid en ég er þakklátur fyrir allt sem hann gerði fyrir mig," sagði Brasilíumaðurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert