Tvö Íslendingalið í átta liða úrslit

Albert Guðmundsson og félagar eru komnir í átta liða úrslit.
Albert Guðmundsson og félagar eru komnir í átta liða úrslit. mbl.is/Kristinn Magnússon

Albert Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum hollenska bikarsins í fótbolta með sannfærandi 5:0-sigri á Zwolle á heimavelli sínum. 

Íslenski landsliðsmaðurinn byrjaði á varamannabekk AZ Alkmaar en kom inn á eftir 70 mínútna leik í stöðunni 5:0. Oussama Idrissi skoraði tvö mörk fyrir AZ Alkmaar sem var komið í 3:0 eftir aðeins 26 mínútur. 

Kristófer Ingi Kristinsson og liðsfélagar í Willem II eru einnig komnir í átta liða úrslit eftir 3:0-sigur á C-deildarliðinu Amsterdamsche á heimavelli. Kristófer var allan tímann á varamannabekk Willem II. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert