Balotelli samþykkir tilboð Marseille

Mario Balotelli spilar með Marseille út leiktíðina.
Mario Balotelli spilar með Marseille út leiktíðina. AFP

Mario Balotelli samþykkti í dag samningstilboð franska knattspyrnufélagsins Marseille og verður hann staðfestur sem leikmaður liðsins á morgun. L'Equipe í Frakklandi greindi frá. 

Balotelli kom til Nice árið 2016 og skoraði 33 mörk í 61 leik með liðinu. Hann byrjaði gríðarlega vel með Nice en hefur ekki skorað í tíu leikjum á tímabilinu. Hann lenti svo upp á kant við Patrick Vieira, knattspyrnustjóra liðsins. 

Balotelli var samningslaus eftir tímabilið og gildir samningur hans við Marseille út leiktíðina. Balotelli hefur leikið með Inter, AC Milan, Manchester City og Liverpool. Hann á 36 landsleiki með Ítalíu og í þeim hefur hann skorað 14 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert