Engin von um að finna Sala á lífi

Emiliano Sala.
Emiliano Sala. AFP

Björgunaraðilar segja enga von um að finna argentínska knattspyrnumanninn Emiliano Sala á lífi en afar víðtæk leit að flugvélinni sem hann var í hefur ekki skilað neinum árangri.

Tekin verður ákvörðun síðar í dag um hvort leitinni verður haldið áfram. Í dag hef­ur verið leitað á stóru svæði þar sem brakið fannst í gær­kvöld, en eng­ar nýj­ar vís­bend­ing­ar hafa komið fram. Þrjár flug­vél­ar og ein þyrla hafa leitað í dag, auk þess sem skoðaðar eru gervi­hnatta­mynd­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert