Flugvélin sem flutti Sala er fundin

Emiliano Sala.
Emiliano Sala. AFP

Flugvélin sem hvarf af ratsjám yfir Ermarsundi, með knattspyrnumanninn Emiliano Sala og flugmann vélarinnar um borð, fyrir tæplega tveimur vikum er fundin. Fjölskylda knattspyrnumannsins hefur verið látin vita.

Sky Sports greinir frá því að leitarbátur hefði fundið brak vélarinnar á hafsbotni Ermarsunds.

„Ég get staðfest að hún er fundin,“ hefur AFP-fréttaveitan eftir talsmanni rannsóknarnefndar flugslysa í Bretlandi. Sala var á leið frá Frakklandi til Bretlands til að ganga til liðs við nýtt knattspyrnulið, Cardiff City, þegar vélin hvarf af ratsjám.

Sala var farþegi um borð í flug­vél af gerðinni Piper PA-46 Mali­bu þegar hún hvarf af rat­sjám um 20 kíló­metra norður af Gu­erns­ey. Auk Sala var flugmaður­inn Dave Ib­bot­son um borð en hann hafði verið feng­inn með skömm­um fyr­ir­vara til að fljúga vél­inni.

Fréttin var uppfærð 21:56

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert