Rabiot vill fara til Spánar

Adrien Rabiot verður samningslaus hjá PSG í sumar.
Adrien Rabiot verður samningslaus hjá PSG í sumar. AFP

Adrien Rabiot, miðjumaður franska knattspyrnufélagsins PSG, vill komast til spænska stórliðsins Barcelona en það er Le Parisien sem greinir frá þessu í dag. Rabiot verður samningslaus hjá PSG í sumar og getur því farið frítt frá félaginu. Frá því að Rabiot greindi frá þeirri ákvörðun sinni að hann ætlaði sér ekki að framlengja við PSG hefur hann verið úti í kuldanum hjá félaginu.

Þessi 23 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá PSG en þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki rúmlega 150 leiki fyrir félagið. Rabiot hefur verið sterklega orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu en Tottenham er sagt mjög áhugasamt um leikmanninn. Fjölmiðlar á Spáni telja einnig að Rabiot geti farið til Barcelona en félagið sér hann sem framtíðararftaka fyrir Ivan Rakitic sem gæti yfirgefið Barcelona í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert