Svava á skotskónum í bikarnum

Svava Rós Guðmundsdóttir fer mjög vel af stað í Svíþjóð …
Svava Rós Guðmundsdóttir fer mjög vel af stað í Svíþjóð með Kristianstad. mbl.is/Eggert

Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði annað mark Kristianstad þegar liðið vann 3:0-sigur gegn Limhamm Bunkeflo í sænska bikarnum í knattspyrnu í dag en mark Svövu kom í upphafi seinni hálfleiks. Sif Atladóttir var í byrjunarliði Kristianstad og spilaði allan leikinn líkt og Svava Rós en Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir var ónotaður varamaður. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari liðsins en Kristianstad fer vel af stað í sænska bikarnum og hefur unnið báða leiki sína sannfærandi.

Þá lék Glódís Perla Viggósdóttir allan leikinn í hjarta varnarinnar fyrir Rosengärd þegar liðið vann stórsigur gegn Kalmar, 4:0 en Rosengård hefur einnig unnð báða leiki sína sannfærandi til þessa. Anna Rakel Pétursdóttir var svo í byrjunarliði Linköping og lék allan leikinn þegar liðið gerði 1:1-jafntefli við Växjö en Linköping hefur unnið einn leik og gert eitt jafntefli í bikarnum til þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert