Khedira með óreglulegan hjartslátt

Sami Khedira verður ekki með Juventus á móti Atlético Madríd.
Sami Khedira verður ekki með Juventus á móti Atlético Madríd. AFP

Sami Khedira ferðaðist ekki með liðsfélögum sínum í Juventus til Madríd, þar sem hann er með óreglulegan hjartslátt. Juventus og Atlético Madríd eigast við í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. 

Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, sagði á fréttamannafundi í dag að Khedira myndi byrja hjá Juventus, en ljóst er að Þjóðverjinn verður ekki með, þar sem hann mun fara í frekari skoðun hjá læknum félagsins. 

Khedira æfði á fullu á mánudaginn og í dag, en vandamálið kom í ljós eftir æfingu dagsins. Khedira er búinn að spila 15 leiki fyrir Juventus og þar á meðal tvo síðustu leiki, án vandræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert