Evrópudeildin er mjög mikilvæg

Unai Emery fagnar í dag.
Unai Emery fagnar í dag. AFP

„Þetta voru góð úrslit og við erum að bæta okkur. Við vorum andlega sterkir í leiknum,“ sagði Unai Emery, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir 3:0-sigur á Bate Borisov í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. 

Bate vann fyrri leikinn 1:0, en Arsenal var mikið sterkari aðilinn í kvöld. „Evrópudeildin er mjög mikilvæg fyrir okkur og úrslitin í fyrri leiknum voru alls ekki góð. Liðið gerði mjög vel í að snúa þessu við.“

„Við ræddum saman í morgun og í búningsklefanum um að halda áfram að sækja ef við myndum skora. Við gerðum það og skoruðum tvö mörk í viðbót. Við þurfum að halda því áfram í næstu leikjum,“ sagði Spánverjinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert