Franski varnarmaðurinn Aymeric Laporte framlengdi í dag samning sinn við Manchester City um tvö ár og er hann nú samningsbundinn til 2025.
Laporte hefur bæði leikið sem vinstri bakvörður og miðvörður á leiktíðinni, en hann er fyrst og fremst miðvörður. Hann kom til City í janúar á síðasta ári frá Atletic Bilbao.
Laporte er búinn að vera afar mikilvægur hlekkur hjá City, sem getur enn unnið fjóra titla á tímabilinu. Liðið er í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar, í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, úrslitum deildabikarsins og í átta liða úrslitum enska bikarsins.