Lionel Messi gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu þegar Spánarmeistarar Barcelona unnu 4:2 útisigur gegn Sevilla í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag.
Barcelona lenti tvívegis undir í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 2:1 heimamönnum í vil en Messi, sem skoraði mark Börsunga í fyrri hálfleik, kom meisturunum yfir með tveimur mörkum á 67. og 80. mínútu og undir lokin innsiglaði Luis Suárez sigur Barcelona þegar hann skoraði fjórða markið.
Þrennan sem Messi skoraði í dag var hans 50. á ferlinum og þessi magnaði Argentínumaður er nú búinn að skora 650 mörk.
Barcelona náði með sigrinum 10 stiga forskoti á Atlético Madrid, sem á leik til góða.