Þýsku meistararnir í Bayern München eru heldur betur búnir að setja pressu á Borussia Dortmund í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Bayern hafði í dag betur gegn Hertha Berlín 1:0 þar sem Javi Martinez skoraði sigurmarkið með skalla á 62. mínútu leiksins eftir hornspyrnu James Rodriguez.
Bayern München hefur þar með unnið tíu af síðustu 11 leikjum sínum í deildinni en áður en sigurganga liðsins hófst var liðið í fimmta sæti, níu stigum á eftir Dortmund.
Með sigrinum komust Bæjarar upp að hlið Dortmund í toppsæti deildarinnar en Dortmund tekur á móti Bayer Leverkusen á morgun.