Unnusta Ronaldos grét (myndskeið)

Georgina Rodriguez í stúkunni í gærkvöld.
Georgina Rodriguez í stúkunni í gærkvöld. Ljósmynd/Twitter

Georgina Rodriguez, kærasta Cristiano Ronaldo, gat ekki haldið aftur af tárunum þegar hún sá Ronaldo skora þriðja mark sitt og tryggja Juventus farseðilinn í átta liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld.

Rodriguez var á Allianz Stadium og hún hélt niðri í sér andanum þegar Ronaldo steig á vítapunktinn á 86. mínútu. Eftir að hafa þrumað knettinum í netmöskvana grét unnusta portúgalska fótboltasnillingsins og Cristiano Junior, átta ára sonur Ronaldos, fagnaði ógurlega þegar hann sá föður sinn fullkomna þrennuna en þetta má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert