Pogba dreymir um að spila fyrir Real

Paul Pogba ræddi við fréttamenn í dag.
Paul Pogba ræddi við fréttamenn í dag. AFP

Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, viðurkenndi á blaðamannafundi í dag að hann dreymir um að spila með Real Madríd. Pogba er hins vegar ánægður í Manchester sem stendur.  

„Real er eitt stærsta félag heims og ég hef alltaf sagt að það er draumur allra leikmanna að spila fyrir félagið,“ sagði Pogba, sem verður í eldlínunni gegn Moldóvu og Íslandi á komandi dögum í undankeppni EM 2020. 

„Ég er ánægður hjá Manchester United. Þar er nýr stjóri sem ég vona að verði áfram. Úrslitin eru búin að vera góð og samband stjórans og leikmanna er gott. Solskjær á skilið að vera áfram,“ bætti Pogba við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert