Stuðningsmenn PSG gripnir með dóp og vopn

Frá leiknum í kvöld.
Frá leiknum í kvöld. Ljósmynd/ChelseaFCW

Chelsea er í fínum málum í einvígi sínu gegn PSG í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir 2:0-sigur á heimavelli sínum í kvöld. Hannah Blundell kom Chelsea yfir með marki á 73. mínútu og Erin Cuthbert bætti við marki á 88. mínútu og þar við sat. 

Fyrir leik voru nokkrir stuðningsmenn PSG handteknir eftir að vopn og eiturlyf fundust í rútu þeirra á leið frá Frakklandi til London. Um 50 stuðningsmönnum var meinaður aðgangur að vellinum. 

Höfðu einhverjir stuðningsmenn franska félagsins valdið skemmdum á Kingsmeadow-vellinum í morgun. Einhverjir stuðningsmannanna hafa áður fengið bönn frá karlaleikjum félagsins og eiga nú yfir höfði sér bann frá kvennaleikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert