Vonbrigði fyrir Brasilíumenn

Lucas Paqueta að skora sitt fyrsta mark fyrir Brasilíu.
Lucas Paqueta að skora sitt fyrsta mark fyrir Brasilíu. AFP

Brasilíumenn urðu að sætta sig við 1:1 jafntefli við Panama en þjóðirnar mættust í vináttuleik í Porto í Portúgal í gærkvöld.

Lucas Paqueta, leikmaður AC Milan, kom Brasilíumönnum yfir í leiknum á 32. mínútu með sínu fyrsta landsliðsmarki en fjórum mínútum síðar jafnaði Adolfo Machado metin fyrir Panama.

Brasilíumennirnir Richarlison og Casemiro áttu báðir stangarskot í seinni hálfleik en allt kom fyrir ekki og Brasilíumenn, sem eru í þriðja sæti á heimslistanum, urðu að sætta sig við jafntefli gegn Panama, sem er í 76. sæti á heimslistanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert