Nýjar upplýsingar fyrir mig

Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki hafa komið neinar fréttir úr herbúðum sænska knattspyrnuliðsins Djurgården um að Kolbeinn Sigþórsson sé að verða leikmaður liðsins en vefsíðan Fótbolti.net greindi frá því í gær að Kolbeinn hafi fundað með forráðamönnum sænska liðsins í gær.

„Þetta eru nýjar upplýsingar fyrir mig. Ég get ekki staðfest að ég hafi hitt hann,“ sagði Bosse Andersson íþróttastjóri Djurgården í samtali við sænska blaðið Expressen.

Kol­beinn er laus allra mála frá Nan­tes í Frakklandi eft­ir að hafa verið þar frá ár­inu 2015 og ekk­ert fengið að spila á yf­ir­stand­andi keppn­is­tíma­bili, í kjöl­far langvar­andi meiðsla þar á und­an.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert