Barcelona konur standa vel að vígi

Kheira Hamraoui fagnar marki sínu í kvöld.
Kheira Hamraoui fagnar marki sínu í kvöld. AFP

Barcelona stendur vel að vígi í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki í knattspyrnu og á góða möguleika á að leika til úrslita um Evrópumeistaratitilinn.

Barcelona vann í kvöld 1:0 útisigur gegn þýska liðinu Bayern München í fyrri undanúrslitaleik liðanna. Það var franska landsliðskonan Kheira Hamraoui sem skoraði sigurmarkið á 63. mínútu leiksins.

Fyrr í dag fögnuðu Evrópumeistarar Lyon 2:1 sigri á móti Chelsea á heimavelli eins og áður hefur komið fram hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert