Viðar Örn Kjartansson og samherjar hans í sænska knattspyrnuliðinu Hammarby unnu góðan 3:1-heimasigur á Eskilstuna í efstu deild Svíþjóðar í dag. Viðar lék allan leikinn og skoraði annað mark Hammarby á 31. mínútu.
Viðar var einnig á skotskónum í síðustu umferð er hann skoraði mark Hammarby í 1:2-tapi fyrir Helsingborg og er hann nú með tvö mörk í fjórum leikjum fyrir Hammarby.
Hann er að láni hjá sænska félaginu frá Rostov í Rússlandi. Hammarby er í sjötta sæti deildarinnar með fimm stig eftir fjórar umferðir.
Í B-deildinni mátti Íslendingaliðið Mjällby þola 1:2-tap fyrir Dalkurd á útivelli. Gísli Eyjólfsson var í byrjunarliði Mjällby og spilaði fyrstu 59. mínúturnar. Óttar Magnús Karlsson leysti hann af hólmi og lék síðasta rúma hálftímann.