Titillinn innan seilingar hjá Barca

Markaskorararnir Carles Alena og Luis Suarez fagna marki í kvöld.
Markaskorararnir Carles Alena og Luis Suarez fagna marki í kvöld. AFP

Fátt getur nú komið í veg fyrir sigur FC Barcelona í spænsku knattspyrnunni en liðið er með yfirburðaforystu í La Liga eftir sigur á Alavés á útivelli 2:0. 

Barcelona er með 80 stig í efsta sæti og hefur aðeins tapað tveimur leikjum í deildinni. Atletico Madríd er í öðru sæti með 68 stig og á leik til góða. Barca þarf því einungis fjögur stig í síðustu fjórum umferðunum til að tryggja sér sigurinn. 

Carles Alena kom Barca yfir á 54. mínútu og Luis Suarez bætti við marki úr víti á 60. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert