Pólverjinn Robert Lewandowski skoraði tvívegis þegar Bayern München sigraði Werder Bremen 3:2 eftir sveiflukenndan leik á Weserstadion í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Bayern mætir RB Leipzig í úrslitum sem vann HSV 3:1 í hinum undanúrslitunum í gær.
Lewandowski og Thomas Müller komu Bayern í 2:0 í kvöld en þeir Yuya Osako og Milot Rashica jöfnuðu fyrir Bremen með mörkum á 74. og 75. mínútu.
Lewandowski skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 80. mínútu.
Aron Jóhannsson er ekki leikfær hjá Werder Bremen.