Ronaldo valinn leikmaður ársins

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP

Cristiano Ronaldo leikmaður Ítalíumeistara Juventus var í dag útnefndur leikmaður ársins í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu.

Ronaldo gekk í raðir Juventus fyrir tímabilið frá Real Madrid. Hann hefur skorað 21 mark í 31 leik með Juventus í deildinni og þá skoraði hann sex mörk með Juventus í Meistaradeildinni.

Ronaldo er fyrsti leikmaðurinn til að verða valinn leikmaður ársins í þremur löndum en hann var valinn leikmaður ársins bæði á Englandi og á Spáni.

Portúgalinn var í eldlínunni með Juventus gegn Atalanta í ítölsku A-deildinni í kvöld. Liðin gerðu 1:1 jafntefli og jafnaði Króatinn Mario Mandzukic metin fyrir meistaranna tíu mínútum fyrir leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert