Passar ekki inn í lið mitt

Gareth Bale á varamannabekknum í gær.
Gareth Bale á varamannabekknum í gær. AFP

Nánast öruggt er að Wales-verjinn Gareth Bale yfirgefi Real Madrid í sumar en hann var ónotaður varamaður í tapi Real Madrid gegn Real Betis í lokaumferð spænsku 1. deildarinnar í gær.

Bale rauk strax inn í búningsklefann eftir leikinn og tók ekki þátt í að þakka stuðningsmönnum Real Madrid fyrir tímabilið eins og jafnan er gert í síðasta heimaleiknum.

Þegar Zinedine Zidane var spurður að því eftir leikinn hvort Bale sé á förum sagði hann:

„Ég veit ekki hvort þetta hafi verið síðasti leikur hans eða ekki. Ég veit ekki hvað gerist. Ef ég held að leikmaður passi ekki inn í liðið þá verð ég að gera það sem ég held að virki best,“ sagði Zidane eftir leikinn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert