Conte að taka við Inter

Antonio Conte.
Antonio Conte. AFP

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Antonio Conte sé að taka við þjálfarastarfinu hjá Inter en Conte hefur ekkert komið að þjálfun frá því hann var rekinn frá störfum hjá Chelsea í júlí á síðasta ári.

Conte mun leysa Luciano Spalletti af hólmi en hann hefur stýrt Inter-liðinu frá árinu 2017. Þegar einni umferð er ólokið af ítölsku A-deildinni er Inter í fjórða sæti og þarf að vinna Empoli á heimavelli á sunnudaginn til að gulltryggja sæti í Meistaradeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert