Sannfærandi sigur Bayern í úrslitum

Bayern er þýskur bikarmeistari.
Bayern er þýskur bikarmeistari. AFP

Bayern München er tvöfaldur meistari í þýska fótboltanum eftir 3:0-sigur á Leipzig í úrslitaleik bikarkeppninnar á Ólympíuleikvanginum í Berlín í dag. Bayern tryggði sér einnig þýska meistaratitilinn á dögunum.

Bayern byrjaði vel og pólski framherjinn Robert Lewandowski skoraði fyrsta markið á 29. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0.

Kingsley Coman bætti við öðru marki á 78. mínútu og Lewandowski gulltryggði 3:0-sigur með sínu öðru marki á 85. mínútu. 

Bayern München hefur nú unnið þýsku bikarkeppnina 19 sinnum, 13 sinnum oftar en Werder Bremen sem er með næstflesta þýska bikartitla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert