Draumabyrjun hjá Úrúgvæ

Luis Suárez fagnar marki sínu.
Luis Suárez fagnar marki sínu. AFP

Úrúgvæ burstaði Ekvador 4:0 í C-riðli S-Ameríkukeppninnar í fótbolta í gærkvöld.

Nicolas Lodeiro opnaði markareikninginn fyrir Úrúgvæa strax á 6. mínútu en á 24. mínútu misstu Ekvadorar mann af velli með rautt spjald þegar Jose Quinteros var vikið af velli.

Úrgúgvæ færði liðsmuninn sér í nyt og bætti við þremur mörkum áður en flautað var til leiksloka. Edison Cavani og Luis Suárez komu Úrúgvæum í 3:0 í fyrri hálfleik og Ekvadorar urðu svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark 12 mínútum fyrir leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert