Geggjað mark hjá Rooney (myndskeið)

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney skoraði magnað mark þegar hann tryggði DC United sigurinn gegn Orlando City í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu í nótt.

Rooney skoraði eina mark leiksins á 10. mínútu leiksins með skoti frá eigin vallarhelmingi. Boltinn fór yfir Brian Rowe markvörð Orlando og í netið og markið er klárlega eitt það fallegasta sem skorað hefur verið á leiktíðinni.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rooney skorar mark með skoti frá eigin vallarhelmingi. Hann gerði það í leik með Everton gegn West Ham fyrir tveimur árum og einnig í leik með Manchester United gegn West Ham fyrir fimm árum.

Rooney og félagar eru með 30 stig í þriðja sæti deildarinnar eftir 18 leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Philadelphia Union.

Glæsimark Rooneys má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert