Hermann á leið í enska boltann?

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. mbl.is/

Hermann Hreiðarsson er í viðræðum við enska D-deildarliðið Macclesfield um að verða aðstoðarmaður Sol Campbells, stjóra liðsins. Þetta kemur fram á vefsíðunni 433.is.

Hermann og Campbell léku saman með Portsmouth á sínum tíma en Campbell tók við stjórastarfinu hjá Macclesfield í desember og tókst að forða félaginu frá falli.

Hermann hefur þjálfað karlalið ÍBV og Fylkis og kvennalið Fylkis og þá var hann um tíma aðstoðarmaður David James hjá Kerala Blasters í Indlandi en lét þar af störfum á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert