Diallo á leið til Paris SG

Abdou Diallo.
Abdou Diallo. Ljósmynd/Dortmund

Franski varnarmaðurinn Abdou Diallo er á leið frá þýska liðinu Borussia Dortmund til franska meistaraliðsins Paris SG.

Vefur ESPN greinir frá því að Diallo muni skrifa undir fimm ára samning við Parísarliðið í dag en kaupverðið er sagt vera 32 milljónir evra sem jafngildir um 4,6 milljörðum króna.

Diallo, sem er 23 ára gamall, kom til Dortmund frá þýska liðinu Mainz í fyrra. Hann kom við sögu í 28 leikjum með Dortmund í deildinni á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert