Rondon sagður á leið til Benítez

Salomon Rondon.
Salomon Rondon. AFP

Kínverska knattspyrnuliði Dalian Yifang  hefur náð samkomulagi við enska B-deildarliðið WBA um kaup á framherjanum Salomon Rondon samkvæmd heimildum Sky.

Kínverska liðið er nú í viðræðum við Venesúelamanninn um samning hans við félagið og er líklegt að hann skrifi undir samning við það á allra næstu dögum.

Rondon var í láni hjá Newcastle á síðustu leiktíð og lék þar undir stjórn Rafael Benítez sem á dögunum var ráðinn þjálfari Dalian Yifang. Til að kaupa upp samning Rondons þarf kínverska liðið að reiða fram 16,5 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert