Ighalo tryggði Nígeríu bronsið

Frá leik Túnis og Nígeríu í kvöld.
Frá leik Túnis og Nígeríu í kvöld. AFP

Nígería tryggði sér í kvöld þriðja sætið í Afríkukeppninni í fótbolta. Nígeríumenn lögðu þá Túnismenn af velli, 1:0. Odion Ighalo, fyrrverandi leikmaður Watford á Englandi, skoraði sigurmarkið strax á þriðju mínútu. 

Eftir markið voru Túnismenn meira með boltann og áttu nokkur skot en illa gekk að hitta mark Nígeríumanna. Ekki bætti úr skák að Taha Khenissi og Nassim Hnid þurftu báðir að fara meiddir af velli hjá Túnis. 

Úrslitaleikurinn á milli Senegals og Alsírs fer fram á laugardaginn kl. 19. Alsír varð meistari í eina skiptið árið 1990 en Senegal er í úrslitum í fyrsta skipti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert