Andri kom inn á í fyrsta leik

Andri Rúnar Bjarnason.
Andri Rúnar Bjarnason. Ljós­mynd/​Kaisers­lautern

Andri Rúnar Bjarnason tók þátt af varamannabekknum í fyrsta leik Kaiserslautern í þýsku C-deildinni í knattspyrnu en tímabilið hófst í dag.

Kaiserslautern, sem féll niður í C-deildina fyrir tveimur árum, fékk Unterhaching í heimsókn í fyrstu umferðinni en tókst ekki að hefja mótið á sigri. Florian Pick kom heimamönnum yfir á 19. mínútu áður en Lucas Hufnagel jafnaði metin á 50. mínútu, 1:1. Andri Rúnar Bjarnason kom svo inn á 69. mínútu en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn.

Eftir viku fer önnur umferðin fram og heimsækja Andri Rúnar og félagar þá lið Sonnenhof en 20 lið leika í C-deildinni. Tvö efstu liðin fara beint upp um deild en liðið sem hafnar í þriðja sæti kemur til með að leika í umspili um sæti í B-deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert