Bronsverðlaun í fyrsta leik Bruce

Newcastle-maðurinn Matt Ritchie og Josh Cullen í baráttunni Í Shanghai …
Newcastle-maðurinn Matt Ritchie og Josh Cullen í baráttunni Í Shanghai í morgun. AFP

Newcastle vann 1:0-sigur á West Ham og hreppti bronsið í Asíubikarnum í Shanghai en ensku félögin eru þar á æfingaferðalagi í sumar.

Japanski framherjinn Yoshinori Muto skoraði eina mark leiksins á 34. mínútu en þetta var fyrsti leikur Newcastle undir stjórn Steve Bruce sem var ráðinn knattspyrnustjóri á miðvikudaginn var. Bruce var þó ekki á hliðarlínunni heldur í stúkunni í dag.

Leikurinn var í beinni útsendingu á Símanum Sport og þar verður úrslitaleikurinn einnig sýndur klukkan 11:30 en þar mætast Wolves og Englandsmeistarar Manchester City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert